föstudagur, 20. janúar 2012

Búrma og svona almennt

Árið 2007 voru mikil mótmæli í Búrma en herforingjastjórnin barði allt saman niður með vopnavaldi á sérlega ógeðfelldan hátt. Það er þess vegna gleðiefni að upp á síðkastið hafa verið að birtast fréttir af bættu ástandi þar í landi. Herforingjastjórnin hefur m.a. slakað aðeins á (ef svo má að orði komast), sleppt föngum og virðist vera að reyna bæta samskiptin við umheiminn. 

Maður vonar auðvitað að þessar fréttir séu sannar og að eitthvað sé á réttri leið í heiminum. Ég get ekki að því gert að þegar ég les um þetta í blöðum þá fer ég að hugsa um sjálfan mig, hvernig ég hef það svona almennt. Ástæðan er fréttatími í útvarpi sem ég hlustaði á árið 2007.

Ég var í bílnum á leiðinni heim úr vinnunni. Fréttatíminn byrjar með frétt um ástandið í Búrma og það er spiluð upptaka þar sem heyrist í öskrandi fólki og skothríð. Það var alveg hræðilegt að hlusta á þetta. Næsta frétt er síðan um stórkostlegt hneyksli. Þáverandi olíu- og orkumálaráðherra Noregs, Åslaug Haga, hafði í embættiserindum heimsótt olíuborpall. Hneykslið fólst í því að á meðan hún var á borpallinum hafði hún ekki notað öryggisgleraugu.

2 comments:

  1. Það er nú fínt að "herforingjastjórnin" á Íslandi hafi ekki vopnavald og komi í veg fyrir að fólk flytji af landi brott, sleppi föngum og leyfi þeim að fara óáreittum víðsvegar um heiminn!Það væri hræðilegt.... en ég veit ekki hvort er betri skotfærin úr byssunum, eða það sem er að gerast hér á hverjum degi? Veist þú hvað er að gerast hér í raun og veru? Ég held ekki.

    ReplyEyða
  2. Uhh...já Nafnlaus. Þetta með Búrma og Ísland er sambærilegt. Frumlegt hjá þér.

    ReplyEyða