föstudagur, 16. desember 2011

Hitch

Í morgunfréttunum var sagt frá því að Christopher Hitchens væri látinn eftir baráttu við krabbamein. Fyrir tilviljun er ég einmitt að lesa ævisöguna hans, Hitch-22, sem er ansi skemmtileg.

Ég las líka bókina hans, God is Not Great, og það er þess virði þó ekki væri nema fyrir kaflann um mormónana. Það er drepfyndið hvernig Hitchens valtar yfir uppruna þeirrar klikkunar. Í dag eru enn milljónir sem trúa og fylgja boðskap dæmds svindlara og rugludalls, Joseph Smith. Það er meira að segja einn í framboði til forseta Bandaríkjanna, Mitt Romney, sem er í þessu "költi" sem má víst ekki kalla "költ". 

Hitchens var auðvitað mjög umdeildur og það er ómögulegt að vera alltaf sammála honum enda líklega ekki til maður sem reif jafn mikið kjaft við allt og alla. Hann skrifaði víst einhvern tímann bók, sem ég hef ekki lesið, þar sem hann tekur upp skítadreifarann á Nóbelsverðlaunahafann Móður Teresu. Bókin heitir The Missionary Position. Ekki mikið heilagt þar.

Uppáhaldið mitt er samt þetta myndbrot. Hitchens veður í þáttastjórnanda hjá Fox og hraunar yfir Jerry Falwell rétt eftir að það ógeðslega fífl drapst.

0 comments:

Sendu inn athugasemd