föstudagur, 4. nóvember 2011

Bikarúrslit

Á sunnudaginn er bikarúrslitaleikurinn í fótbolta hér í Noregi. Brann frá Bergen spilar við Aalesund og eins og gefur að skilja eru ansi margir mjög spenntir í þessari borg. Fyrir tímabilið var Brann spáð fallbaráttu en hefur komið á óvart og verið frekar ofarlega í deildinni. Til viðbótar náðu þeir síðan að komast í úrslit í bikarkeppninni.

Norsk knattspyrna er, líkt og íslensk knattspyrna, oft alveg fjarskalega leiðinleg. Það skiptir ekki máli hvar á vellinum þú spilar, ef þú getur dúndrað fram þá er dúndrað fram. Helst á einhvern þrekinn staur sem á að skalla boltann í markið eða til liðsfélaga. Síðan eru föst leikatriði æfð af miklum aga sem skilar mörgum mörkum eftir hornspyrnur og slíkt. Þetta er í stórum dráttum norska kerfið.

Ólíkt Íslendingum þá hefur hins vegar Norðmönnum gengið frekar vel að ná árangri með þessum leiðinda bolta. Nojararnir eru aftur komnir í 1. styrkleikaflokk í Evrópu á meðan Ísland hefur hrapað niður í ruslflokk. Það mætti halda að íslenskir fjármálasnillingar hefðu stjórnað landsliðinu líka á síðustu árum.

Ég vona auðvitað að Brann vinni á sunnudag og við fáum gott partí. Það er lykilatriði hér að Brann er með Kim Ojo frammi sem "þrekinn staur" og er hann mun betri en sams konar staur hjá Aalesund.

1 comments: