Það virðist ekki vera neitt í fréttum í Noregi þessa dagana annað en perraskapur stjórnmálamanna. TV2 birti upptöku af einum um daginn sem var á hóruhúsi í Riga. Núna er aðallega verið að fjalla um einhvern bæjarstjóra sem hefur verið ákærður fyrir að hafa stundað kynlíf með stúlku undir lögaldri.
Ég hef alltaf haft efasemdir um umfjöllun fjölmiðla um svona mál. Það er ekki út af því að ég vorkenni stjórnmálamönnunum heldur frekar það að þeir eiga líka fjölskyldur sem hafa ekkert gert af sér. Fjölskyldur sem hafa ekki valið að verða opinberar persónur. Það getur ekki verið sérstaklega gaman að mæta í skólann daginn eftir að pabbi var í öllum fréttatímum að koma út af hóruhúsi. Kannski fer líka bara í taugarnar á mér að heyra hræsnisfulla blaðamenn réttlæta umfjöllunina.
Bretar eru náttúrulega snarklikkaðir þegar kemur að svona umfjöllun og Bandaríkjamenn fylgja fast á eftir. Ég man alltaf eftir málinu um David Mellor fyrir löngu síðan og ástæðan er einföld. Þetta var einhver breskur stjórnmálamaður sem ég vissi ekkert um en fjölmiðlum þar fannst að ég þyrfti að vita að hann fílaði að taka viðhaldið í Chelsea búningi. Í Chelsea búningi, ojbarasta.
föstudagur, 30. september 2011
Subscribe to:
Post Comments (Atom)
0 comments:
Sendu inn athugasemd